Tuesday 24 April 2012

Little Miss Sunshine

Fyrir nokkru síðan prjónaði ég stelpukjól. Það er svo sem ekki í frásögu færandi nema fyrir það að ég hef ekki gert mikið af því að prjóna kjóla frá því stelpurnar mínar voru litlar, og það er sko langt síðan það var.

Kjólinn prjónaði ég úr alveg frábæru garni frá Garnbúð Gauju. Garnið kallast Thema Nuova og er ullargarn sem má þvo í þvottavél. Garnið er bæði mjúkt og prjónast ákaflega vel. Áferðin er falleg og verður jafnvel ennþá fallegri þegar búið er að þvo það.

Ég ákvað að hafa kjólinn litríkan og glaðlegan enda tel ég að litlar stelpur eigi að ganga í glaðlegum fötum. Ég valdi mér því sólgulan,  skærbleikan og hvítan lit. Svo ákvað ég að blanda saman gataprjóni og tvíbandaprjóni en nota jafnframt slétt prjón og garða svona í bland.

Ég var nokkuð ánægð með útkomuna þegar ég var búin að prjóna kjólinn og flýtti mér að þvo hann enda gat ég vart beðið með að máta hann og sjá hvort hann færi vel. Lítill nágranni minn var síðan fenginn til að máta fyrir mig kjólinn. Hann reyndist heldur stór á hana enda trítlan litla smágerð. En ég var ánægð með útkomuna og sú litla var einnig ánægð í kjólnum.
Eins og allar uppskriftir þurfti þessi að fá nafn. Meðan ég prjónaði kjólinn setti ég reyndar vinnuheiti á uppskriftina eins og ég geri alltaf þegar ég bý til uppskriftir. Mér finnst nefnilega skemmtilegra að vera með uppskrift í höndunum sem heitir eitthvað, jafnvel þótt ég breyti nafninu seinna. Nafnið sem ég valdi sem vinnuheiti var Little Miss Sunshine. Það er tilkomið vegna þess að persóna í bókasyrpu sem var vinsæl hjá krökkunum mínu var með þessu nafni og hún var gul á lit eins og einn aðallitur kjólsins. Á meðan ég prjónaði kjólinn datt mér svo oft þessi sniðuga stelpa í hug. 

Nú er uppskriftin að þessum kjól tilbúin og ég hef valið henni nafnið Sólbjört. Þeir sem vilja geta fengið uppskriftina keypta. Ef þú vilt eignast hana þarftu að hafa samband við mig á prjonauppskriftir@gmail.com

6 comments:

  1. Mér finnst hann eigi að heita Sóley :)

    ReplyDelete
  2. Sting upp á "Sóllilja" á þennan yndislega fallega kjól :)

    ReplyDelete
  3. Æðislegur kjóll! Mér finnst munstrið minna mig á brumin á trjánum úti svo Brum gæti nú verið ágætis nafn :)

    ReplyDelete
  4. Æðislegur þessi kjóll, vor er ágætis nafn á kjólinn.

    ReplyDelete


Það er alltaf gaman að lesa athugasemdir ykkar við færslurnar mínar svo endilega skrifið smá skilaboð til mín.