Friday 16 November 2012

Skafrenningur

Í dag er dagur íslenskrar tungu og afmælisdagurJónasar Hallgrímssonar skálds og nýyrðasnillings. Á þessum degi hugleiða margir falleg orð sem til eru í tungumálinu okkar. Þess vegna valdi ég pistlinum heitið Skafrenningur, enda finnst mér það sérlega áhugavert orð þótt veðrið sem það lýsir sé mér ekki að skapi.

Þegar kominn er 16. nóvember er líka kominn sá tími árs sem vænta má leiðinda í veðurfari. Í dag er kalt, snjór er yfir öllu og sumarfötin duga alls ekki lengur. Í morgun langaði mig til að vefja um hálsinn á mér hlýjum prjónuðum kraga til að verjast næðingnum en átti ekki neinn. Já, við erum ekki alltaf tilbúin með vetrarfatnaðinn þegar fyrsta kuldakastið kemur. Því ákvað ég að koma í dag með uppskrift að kraga sem væri allt í senn, fallegur, fljótprjónaður og auðveldur. 

En kraginn er ekki bara sérlega fljótprjónaður, hann er líka góð æfing í að taka út til vinstri. Tvær leiðir eru algengastar við slíkar úrtökur og eru þær báðar útskýrðar hér að neðan. Þær gefa sömu, eða svipaða útkomu en misjafnt er hvað hverjum fellur í geð. Veldu bara þá leið sem þú vilt. Sjálf nota ég oftast aðferðina sem ég kýs að kalla ttp (sbr. ssk á ensku).

Úrtaka til vinstri
Tvær aðferðir eru algengastar þegar tekið er út til vinstri:
1.       Taktu eina lykkju óprjónaða af prjóninum, prjónaðu næstu lykkju og steyptu síðan óprjónuðu lykkjunni yfir hana.
2.       Taka, taka, prjóna  (ttp): - Taktu 2 lykkjur óprjónaðar af prjóninum (eina í einu) stingdu vinstri prjóninum í lykkjurnar og prjónaðu þær saman með því að fara aftan í þær.

Þetta myndband sýnir hvernig ttk (ssk) er gert:

http://www.youtube.com/watch?feature=player_embedded&v=fUoOybvJeKg

Kragi með úrtöku til vinstri

Fitjaðu upp á hringprjón nr 6, 74 lykkjur fyrir einfaldan kraga en 149 lykkjur fyrir tvöfaldan, þ.e. kraga sem á að vefja um hálsinn. Tengdu saman í hring. Ef þú vilt breyta lykkjufjölda miðaðu þá við að fitja upp margfeldi af 5 og bættu síðan 4 lykkjum við. 



Myndin er af munstrinu. Allar umferðir eru prjónaðar eins. Þú slærð bandi upp á prjóninn, prjónar tvær lykkjur saman til vinstri, prjónar síðan 3 lykkjur sléttar. Þetta endurtekur þú þar til þeirri hæð er náð sem þú vilt hafa á kraganum. Felldu þá af og gakktu frá endum.

Svo er líka hægt að prjóna kragann með halla til hægri. Þá er farið svona að:

Allar umferðir eru eins:  Prjónaðu 3 lykkjur sléttar, prjónaðu 2 lykkjur saman, sláðu bandi um prjóninn.

6 comments:

  1. Mér líst vel á þetta munstur og langar að prófa það. Þú talar um kraga, einfaldan og tvöfaldan, er þetta þá trefill? Svo talarðu um að það sé prjónað á hæðina, en ég skil ekki alveg hvernig hann á að líta út. Geturðu útskýrt þetta betur fyrir mér? Svo þakka ég fyrir flott blogg hjá þér, ég fylgist með því.
    Kveðja, Hellen

    ReplyDelete
  2. Hellen ég kalla þetta kraga og á því miður ekki mynd af honum. Ég hef að vísu prjónað einn svona en var ekki með hann heima. Ég skal taka mynd af honum á morgun og setja hér inn. Sumir kalla svona kraga hringtrefil, aðrir strokk og sjálfsagt eru til ýmis önnur nöfn á þessu fyrirbæri. Fitjað er upp á neðri hluta kragans og tengt í hring (þessi hluti leggst því á axlirnar) svo er prjónað í þá hæð sem maður vill að sé á kraganum. Þegar hann er búinn er fellt af og kraganum einfaldlega smeygt yfir höfuðið. 30 cm er algeng hæð á kraganum ef það á að vefja honum um hálsinn en hann er gjarnan hafður hærri ef það á að hafa hann einfaldan.

    ReplyDelete
  3. Takk fyrir þetta var einmitt að reyna að muna hvernig þetta væri gert í dag. Snilld að fá þessu uppskrift fría hér. Takk takk

    ReplyDelete
  4. Takk fyrir þetta, Guðbjörg, ég skil þetta núna!
    Kv. Hellen

    ReplyDelete
  5. Þá er ég búin að bæta við mynd af kraganum í pistilinn.

    ReplyDelete
  6. Má ég forvitnast hvaða garn þú notaðir??

    ReplyDelete


Það er alltaf gaman að lesa athugasemdir ykkar við færslurnar mínar svo endilega skrifið smá skilaboð til mín.