Það er alltaf gaman að gefa fallegar gjafir. Þegar barn fæddist í fjölskyldunni um daginn fékk ég tækifæri til að prjóna eitthvað fallegt. Fyrir valinu varð útigalli úr dásamlega mjúku garni. Garnið er frá Knoll og kallast Coast. Í því er lambsull og bómull blandað saman og útkoman er frábær.
Ég fann uppskrift og studdist við hana þótt ekki færi ég eftir henni á allan hátt. T.d. skipti ég algjörlega út munstrinu en hélt mig nokkurn veginn við lykkjufjölda og lengdarmælingar. En þótt ermarnar sýnist breiðar á myndinni eru þær það ekki, gallinn samsvarar sér mjög vel.
Munstrið fékk ég úr skemmtilegri bók sem ég á. Bókin kallast 200 Fair isle patterns og er algjör Biblía fyrir þá sem hafa gaman af því að leika sér með munstur.
Munstrið í gallanum er sem sagt beint upp úr þessari bók nema kaflinn þar sem úrtökur komu á axlastykkið, þar þurfti ég að breyta og skálda. Litirnir eru hins vegar mitt val.
Til að litlir fingur myndu ekki flækjast í böndunum í munstrinu ákvað ég að vefja þau vel. Það er auðvitað svolítið seinlegra en kemur vel út.
Ég fékk Ásdísi vinkonu mína til að skella rennilásnum í þar sem hún er mjög vön slíku og gerið það vel. Síðan heklaði ég krabbahekl svo lásinn yrði ekki mjög áberandi og einnig til að jaðar hettunnar yrði fallegri.
Svo fannst mér upplagt að prjóna litla vettlinga. Þeir voru mjög hefðbundnir, hvítt slétt prjón og skreyttir með grænu krabbahekli og snúru sem endaði í laufblöðum. En ég gleymdi að taka myndir af þeim fyrir utan þessa þar sem þeir sjást liggja á gallanum.
Svo var gallinn þvegin og þurrkaður. Að lokum pakkaði ég herlegheitunum inn og færði nýbökuðum foreldrum.
Thursday, 24 April 2014
Tuesday, 22 April 2014
Heklaður blómakragi
Stærð: Ein
stærð
12,5
cm hár en auðvelt að láta hann ná hærra upp á hálsinn og lengra niður á bringu.
Í uppskriftinni kemur fram hvar á að bæta við umferðum til að stækka hann. Hver
umferð er u.þ.b. 0,9mm. Græni kraginn á myndinni aftast er 5 umferðum lengri.
Efni: 1 dokka Kartopu Basak eða Kar Sim.
En hægt er að nota alls konar
annað
garn.
Heklunál: Nr.
3,5 og 4 [Ég hekla frekar laust.
[Bleiki kraginn er allur heklaður
með nál nr. 4 en sá græni er með
fyrri hlutann á 3,5 og seinni á 4.
Annað: Nál og skæri í fráganginn.
Skýringar
kl = Keðjulykkja.
ll = Loftlykkja.
fp = Fastapinni.
hst = Hálfstuðull.
2 st = Stuðull.
umf = Umferð.
7Fastapinni í upphafi umferðar. Stungið er undir
fyrsta stuðulinn hægra megin og upp vinstra megin en nálinni er ekki stungið
efst í hann eins og venja er.
88%% Stuðlastroff. Tveir upphleyptir stuðlar þar
sem nálinni er krækt undir stuðulinn framan frá hægra megin við hann og upp
vinstra megin við hann í stað þess að stinga í hann efst eins og venja er og
aðrir tveir þar sem nálinni er krækt á sama hátt utan um stuðulinn aftan frá á
stykkinu.
Aðferð
Kraginn og ennisbandið er hekluð með
heklstroffi. Stroffið er byggt á 4 stuðlum sem heklaðir eru á þann hátt að
tveir eru heklaðir þannig að nálinni er stungið framan frá undir stuðul öðrum
megin og upp hinum megin við hann og aðrir tveir þar sem nálinni er stungið
undir stuðlana frá bakhliðinni (aftan frá).
Á youtube.com má sjá myndbönd sem sýna
aðferðina s.s. þetta hér sem sýnir 1+1 stoff en 2+2 er notað í uppskrifinni: https://www.youtube.com/watch?v=sIYHaOXRqgI
Stuðlastroff
|
|
Kragi
Myndin sýnir 1 munstur
í kraganum en samtals er það endurtekið 16 sinnum. Þar sem það er útaukning í
munstrinu eru höfð bil í teikningunni sem ekki koma fram í heklinu sjálfu. Stuðull sem sýndur er beint fyrir ofan annan
er heklaðu í stuðul en þegar enginn stuðull er undir stuðli á myndinni er um
útaukningu að ræða. 16 munstur eru í
hverri umferð og lesið er ofan frá frá vinstri til hægri. Hægt er að gera
kragann þrengri eða víðari en þá þarf að fækka eða fjölga lykkjum um 4, þ.e.
heilt munstur.
2 222 1.umf
8 8%% 2.-8.umf
(má fjölga)
8 2 8%% 9.umf.
8 2 8 2 8%% 10.umf
8 % 8 % 8%% 11.umf (má fjölga)
8% %8% %8%% 13.umf
(má fjölga)
Fitjaðu upp mjög laust 64 loftlykkjur og tengdu saman í
hring. Gott er að nota heklunál sem er 1-2 númerum stærri en sú sem á að hekla
með.
1. umf. 2222
Heklunál
nr. 3,5. Heklaðu 3 loftlykkjur (=1 st) og heklaðu síðan stuðla í allar
loftlykkjurnar (= 64 st). Tengdu með keðjulykkju efst í efstu loftlykkjuna.
Ath.
Allar umferðir byrja á tengingu sem er ígildi fyrsta stuðuls. Svona ferðu að: Tengdu
saman með keðjulykkju í lok umferðar. Heklaðu 1 fp með því að krækja nálinni undir loftlykkjurnar
þrjár sem eru ígildi fyrsta stuðuls. Bættu við 2 ll.
2.- 8. umf. 88%% (Það er í góðu lagi að fjölga umferðum
til að hækka kragann)
Heklunál
nr. 3,5. Hvert munstur í kraganum eru 4 lykkjur og heklað á þennan hátt: *Heklaðu
stuðlastroff, 2 upphleypta stuðla sem kræktir eru undir stuðlana framan frá og
2 sem krækt er undir stuðlana frá bakhlið.*
Endurtaktu þetta allan hringinn og tengdu með keðjulykkju í lok umferðar.
Heklaðu samtals 7 svona umferðir eða fleiri viljir þú hafa kragann hærri upp í
hálsinn.
(= 64
st)
9. umf. 828%%
Heklunál
nr. 4 hér eftir. Nú er komið að fyrstu útaukningu. Einum stuðli er bætt við
hvert munstur og verða því 5 stuðlar í hverju munstri. Heklaðu
upphafsstuðulinn. Heklaðu því næst einn stuðul í gatið milli fremstu stuðlanna
tveggja. Heklaðu síðan einn upphleyptan stuðul þar sem nálinni er stungið undir
stuðulinn framan frá. Heklaðu því næst tvo stuðla þar sem þú krækir nálinni
undir stuðlana aftan frá. Endurtaktu þetta út umferðina og ath. að í stað
upphafsstuðulsins gerir þú stuðul þar sem þú stingur nálinni undir stuðulinn
ofan frá.
(= 80
st)
10. umf. 82828%
Í þessari umferð eykur þú út í annað sinn og nú
verða samtals 7 stuðlar í hverju munstri. Þú bætir tveimur stuðlum við með því
að hekla einn stuðul á milli stuðuls 1 og 2 og annan á milli stuðuls 2 og 3. Svona ferðu að: Heklaðu 1 upphleyptan stuðul,
1 stuðul á milli st. 1&2, 1 upphleyptan stuðul, 1 stuðul á milli 3&4 og
1 upphleyptan stuðul. Heklaðu því næst tvo stuðla aftan frá. (= 112 st)
11. umf. 8%8%8%%
Í þessari umferð er engin útaukning. Þú byrjar á að
gera *[1 upphleypta stuðul, 1 stuðul aftan frá]x2, 1 upphleyptan stuðul og 2 aftan
frá*. Endurtaktu þetta út umferð. [Bættu við 1-2 umferðum til að síkka kragann
ef þú vilt.]
(= 112 st)
12. umf. 8228228%%
Í þessari umferð eykur þú út í þriðja skiptið og nú
verða 9 stuðlar í munstri. [Heklaðu 1 upphleyptan stuðul og heklaðu síðan tvo
stuðla á milli næstu tveggja stuðla (þ.e. einn hvorum megin við stuðulinn sem þú
heklaðir aftan frá í umferðinni á undan.) ]x2. Heklaðu síðan 1 upphleyptan
stuðul í þriðja upphleypta stuðulinn og tvo stuðla aftan frá þ.e. aftan í tvo
síðustu stuðlana í munstrinu.
(= 144 st)
13. umf. 8%%8%%8%%
Í síðustu umferðinni er engin útaukning. Þú heklar
ýmist upphleypta stuðla eða stuðla sem heklaðir eru aftan frá í alla stuðla út
umferðina. Hvert munstur er svona: [1 upphleyptur stuðull, 2 aftan frá]x3. Ef
þú vilt láta kragann vera síðari bætir þú við umferðum hér.
[Bættu við 2-4 umferðum til að síkka kragann.]
(= 144 st)
Blóm
Fitjaðu upp 21 loftlykkju.
- umf. Heklaðu stuðul í 5. loftlykkju frá nálinni. *Hoppaðu yfir 1
loftlykkju. Heklaðu 1 stuðul, 2 loftlykkjur og 1 stuðul í næstu
loftlykkju. Endurtaktu þetta út umferðina. Endaðu á að gera 1 loftlykkju.
- umf. Heklaðu 5 stuðla og 1 fastapinna í fyrstu þrjá loftlykkjubogana. Heklaðu 6 stuðla og 1 fastapinna í næstu þrjá og 7 stuðla og 1 fastapinna í síðustu þrjá.
Rúllaðu
blóminu upp og festu það með nokkrum sporum að neðanverðu. Heklaðu samtals 8
blóm og saumaðu á kragann í annað hvert útaukningarlauf.
Laufblöð
Fitjaðu upp 11
loftlykkjur.
- umf. Heklaðu 1 fastapinna í aðra loftlykkju frá nálinni. Heklaðu síðan í næstu 10 loftlykkjur: 1 fp, 1 hst, 6 st, 1 hst, 1 fp.
- umf. Eins og 1. umf. nema heklað er hinum megin í fastapinnana en ekki ofna á það sem heklað var í 1. umf.
Ennisband
Auðvelt er að gera
ennisband með stuðlastroffi. Best er að mæla höfuðmál þess sem á að nota
bandið. Mundu að þú þarft að hafa 4 lykkjur fyrir hvern stuðlamunsturhluta. Mundu
eftir að loftlykkjurnar sem þú gerir í upphafi verða að vera það lausar að þær
komist utan um höfuðið, þær gefa ekki vel eftir.
Fitjaðu mjög
laust upp 64 lykkjur. Heklaðu umf. 1 og
síðan umf. 2 níu sinnum. Heklaðu einnig eina rós og tvö laufblöð til að punta
bandið eða skreyttu það með köntum úr öðru garni eða sama garni.
Græni kraginn er heklaður úr
Kar Sim frá Kartopu. Hann er hafður 5 umferðum lengri en gefið er upp í
grunnuppskriftinni. Bætt var við 2 umferðum við upphafskaflann (umf.2-8), 1
umf. var bætt við eftir 11.umf. (eins og hún) og síðan var 2 umf. bætt við í
lokin. Sami lykkjufjöldi er á þessu kraga og á bleika kraganum.
Heklað var með
fastapinnum á alla kanta með Katía Topi Print (fæst í Föndru).
Subscribe to:
Posts (Atom)