Stundum eru gömlu hefðbundnu leiðirnar í prjónaskap góðar en stundum geta þær verið hamlandi. Það getur alveg verið ágætt að hafa bara hefðbundið stroff neðan á peysu og einnig í hálsmálinu en stundum á það bara ekki við. Stroffhálsmál sem er svolítið flegið getur til dæmis virkað eins og það hafi sigið og tognað.
Sóllilja |
Svona skaltu fara að:
Fitjaðu upp 3 lykkjur með litnum sem þú ætlar að hafa á snúrunni. Færðu þær á prjóninn sem þú ert með í vinstri hendi. *Prjónaðu tvær sléttar lykkjur, prjónaðu síðan næstu tvær lykkjur saman með því að stinga prjóninum aftan í lykkjurnar (frá hægri til vinstri). Færðu þessar þrjár lykkjur sem nú eru á hægri prjóninum til baka á vinstri prjóninn.* Endutaktu frá * til * þar til þrjár lykkjur eru eftir á prjóninum, prjónaðu þær og lykkjaðu/saumaðu kantendana saman. Svo er upplagagt að kíkja á myndbandið hér og skoða þetta betur.
Hér sjáið þið tvær blómarósir í vestinu Sóllilju sem var það fyrsta sem ég hannað með snúrukanti/súruaffellingu, eða ætti ég heldur að kalla þetta stutterma peysu. Fleiri uppskriftir eftir mig getur þú fundið hér.
Hér sjáið þið tvær blómarósir í vestinu Sóllilju sem var það fyrsta sem ég hannað með snúrukanti/súruaffellingu, eða ætti ég heldur að kalla þetta stutterma peysu. Fleiri uppskriftir eftir mig getur þú fundið hér.
Bjargaðir mér alveg núna var að fella af peysu í gærkvöldi og var ekki sátt við hana. Tek það upp og geri það svona :)
ReplyDeleteÞetta þarf ég að prufa takk takk
ReplyDelete