Thursday, 19 April 2012

Legghlífar

Í gær kvöddum við veturinn og trúlega ekki með miklum söknuði. Í hugum margra hefur hann verið langur og stundum strangur. En þó að sumarið sé framundan er upplagt að fitja upp á legghlífum og prjóna úti í sumarsólinni. Þær verða þá tilbúnar þegar fer að kólna aftur í veðri. Sumarið er jú svo ótrúlega stutt.

Legghlífarnar á myndinni eru prjónaðar úr Léttlopa og passa á granna kvenfætur.

En þótt legghlífarnar komi flott út þegar þær eru prjónaðar úr Léttlopa þá eru þær ekki síðri þegar þær eru prjónaðar úr Mitu garni frá Ömmu mús eða öðru flottu garni. Þegar ég prjónaði garnútgáfuna af þeim notaði ég prjóna nr. 4 en stærðin sem uppskriftin gerir ráð fyrir er hálfu númeri stærri. Þá hafði ég líka einu munstri meira í legghlífunum (6 lykkjur) til að þær yrðu ekki of þröngar þegar prjónstærðin minnkaði.

Það passar að miða við 3 dokkur þegar garnmagnið er áætlað. Af Léttlopa er þó hægt að láta 2 duga er legghlífarnar eru hafðar 2-3 cm styttri en uppskriftin gerir ráð fyrir.

Legghlífar - uppskrift:

Efni:
3 dokkur Léttlopi
Sokkaprjónar nr. 3½ og 4½

Fitjaðu laust upp með Léttlopa á prjóna nr. 4½,  48 lykkjur. Tengdu saman í hring. Prjónaðu stroff, 2 sléttar lykkjur og 2 brugðnar til skiptis næstu 3 cm. Þá prjónar þú munstrið Maríutásur þar til heildarlengd legghlífanna er orðin 33 cm. Þegar lengdinni er náð skaltu skipta yfir á prjóna nr. 3 ½  og prjóna stroff næstu 7 cm. Felldu þá af. Gakktu frá endum og skolaðu úr legghlífunum.

Maríutásur:
1.umferð: Prjónaðu 2 sléttar lykkjur og 1 brugðna til skiptis út umferðina.

2.umferð: Prjónaðu *2 sléttar lykkjur, 1 brugðna, sláðu bandi upp á prjóninn og prjónaðu næstu 2 lykkjur sléttar saman og endaðu á 1 brugðinni lykkju*. Endurtaktu frá * til * út umferðina.

3.umferð: Prjónaðu 2 sléttar lykkjur og 1 brugðna til skiptis út umferðina.

4.umferð: Prjónaðu *2 sléttar lykkjur, 1 brugðna, taktu 1 lykkju óprjónaða fram af og prjónaðu næstu lykkju – steyptu síðan óprjónuðu lykkjunni yfir hana, sláðu bandi upp á prjóninn og endaðu síðan á 1 brugðinni lykkju*. Endurtaktu frá * til * út umferðina. (Athugaðu að þegar þú prjónar brugðna lykkju beint á eftir uppslætti er í rauninni eins og þú sért að slá tvisvar upp á bandið fyrir brugðnu lykkjuna).

Ef þú vilt stækka uppskriftina þarftu að taka mið af því að hvert munstur er 6 lykkjur.

Munstrið Maríutásur er eitt af uppáhalds munstrunum mínum og ég hef notað það í margs konar stykki. Munstrið er sérlega auðvelt og fljótprjónað.

Svo væri gaman ef þið vilduð kommenta um bloggið hér fyrir neðan. Það er svo hvetjandi!

Monday, 16 April 2012

Brellustroff

Stundum þegar ég prjóna peysur kýs ég að hafa eitthvað annað neðan á þeim en hefðbundið stroff. Ég hef sett fléttur, perluprjónskant, gataprjónskant og margt annað. 

Brellustroff er munstur sem bæði er mjög skemmtilegt að prjóna og það setur einnig fallegan svip á peysur. Þetta munstur lítur svipað út og slétt og brugðið en þó er engin brugðin lykkja í munstrinu, í því er brellan fólgin. Munstrið er frekar þétt og dregst ekki saman á sama hátt og hefðbundna stroffið. Það er ekki mikil teygja í því en það fellur fallega á peysu sem ekki á að dragast saman að neðan. Munstrið hentar því á síðar kvenpeysur, á kanta framan á peysur sem á að vera hægt að bretta upp og í kraga.

Munstrið byggir á 3 lykkjum og 2 umferðum og er prjónað er fram og til baka.

Allar umferðir eru prjónaðar eins:
*Taktu 1 lykkju óprjónaða með bandið fyrir framan. Prjóninum er þá stungið í lykkjuna eins og þú ætlir að prjóna brugðið og bandið látið liggja fyrir framan. Prjónaðu næstu 2 lykkjur sléttar.* Endurtaktu frá * til * út umferðina.

Prjónaðu áfram og farðu eins að í öllum umferðum.


Friday, 13 April 2012

Snúruaffelling

Stundum eru gömlu hefðbundnu leiðirnar í prjónaskap góðar en stundum geta þær verið hamlandi. Það getur alveg verið ágætt að hafa bara hefðbundið stroff neðan á peysu og einnig í hálsmálinu en stundum á það bara ekki við. Stroffhálsmál sem er svolítið flegið getur til dæmis virkað eins og það hafi sigið og tognað. 

Sóllilja
Einhvern tímann þegar ég var að prjóna vesti datt mér í hug að setja á það snúrukant. Og viti menn, útkoman var bara flott. Síðan þá hef ég oft notað snúrukant eða snúruaffellingu þegar ég geng frá í hálsmáli. Það er mjög auðvelt að gera slíkt. Maður þarf bara að hafa lifandi lykkjur, þ.e. annað hvort þarf maður að eiga eftir að fella af eða maður tekur upp lykkjur á þeim kanti sem á að vera með snúru.

Svona skaltu fara að:
Fitjaðu upp 3 lykkjur með litnum sem þú ætlar að hafa á snúrunni. Færðu þær á prjóninn sem þú ert með í vinstri hendi. *Prjónaðu tvær sléttar lykkjur, prjónaðu síðan næstu tvær lykkjur saman með því að stinga prjóninum aftan í lykkjurnar (frá hægri til vinstri). Færðu þessar þrjár lykkjur  sem nú eru á hægri prjóninum til baka á vinstri prjóninn.* Endutaktu frá * til * þar til þrjár lykkjur eru eftir á prjóninum, prjónaðu þær og lykkjaðu/saumaðu kantendana saman. Svo er upplagagt að kíkja á myndbandið hér og skoða þetta betur.

Hér sjáið þið tvær blómarósir í vestinu Sóllilju sem var það fyrsta sem ég hannað með snúrukanti/súruaffellingu, eða ætti ég heldur að kalla þetta stutterma peysu. Fleiri uppskriftir eftir mig getur þú fundið hér.

Wednesday, 11 April 2012

Perla og Brák

+
Perla er fyrsta peysan mín sem birtist í prjónabók. Það er auðvitað mjög gaman að fá slíka uppskrift birta þegar maður er bara að byrja að hanna flíkur. 

Perla var byggð á annarri peysu sem ég hafði gert og fannst koma mjög vel út. Sú peysa var kölluð Brák. Nafngift hennar kom frá ambátt Egils Skallgrímssonar. Mér fannst nefnilega að peysa sem búin væri til úr einföldum lopa væri svo ódýr að það væri bara á henni ambáttarverð. 

Á peysunni Brák er keltneskt munstur í miðjunni sem vitnar til keltnesks upprunar ambáttarinnar. Og þá er grænn litur á henni sem minnti á Írland, landið sem Brák kom frá.
Þegar ég prjóna úr einföldum lopa er mjög misjafnt hvaða prjónfestu ég vel mér. Stundum vil ég prjóna þétt en stundum vil ég hafa allt laust í sér og létt. Þessar tvær peysur prjónaði ég á prjóna nr. 5 og fékk þá út 16 lykkur á 10 cm. Það er prjónfesta sem ég nota líka oft þegar ég prjóna úr Léttlopa. Mér finnst einfaldlega að peysurnar verði svo einstaklega mjúkar þegar ég prjóna þær svona. 

Brák 

Prjónfesta 16 lykkjur = 10 cm í sléttu prjóni
 
Áætluð garnþörf í peysuna
2 (3) 3 plötur svart  -  Litanr. 0059
1 (1) 1 plata ljósgræn samkemba  -  Litanr. 1423
1/2 (1/2) 1/2 plata ljósmóleitur  -  Litanr. 1038
      
Prjónar
60 cm hringprjónn nr. 4,5
40 og 60/80 cm hringprjónn nr. 5,0
Sokkaprjónar nr. 4,5

Yfirvídd
92 (95) 99 cm
Lengd á bol að handvegi
36 (38) 40 cm
Ermalengd
43 (44) 45 cm

 Bolur

Fitjaðu upp með aðallit á hringprjón nr. 4,5,   148 (152) 156 lykkjur. Tengdu í hring og prjónaðu 6  umferðir af tvöföldu perluprjóni eins og sýnt er á myndinni.  X  táknar brugðna lykkju en tómur kassi slétta. Þegar þú hefur lokið við að prjóna stroffið skiptir þú yfir á prjónastærð 5. Settu prjónamerki í báðar hliðar og hafðu 74 (76) 78 L  milli merkja. Prjónaðu slétt prjón með aðallit þar til bolurinn mælist 6 cm frá uppfiti. Þá tekur þú út eina lykkju báðum megin við bæði prjónamerkin. Við það fækkar lykkjum í  umferð um 4. Endurtaktu úrtökuna þegar bolur mælist 11 (13) 15 cm og aftur er hann mælist 16 (18) 20 cm. Prjónaðu áfram þar til bolurinn mælist 21 (23) 25 cm. Þá skaltu auka út eina lykkju báðum megin við merkið. Auktu aftur út er bolurinn mælist 26 (28) 30 cm og enn aftur er hann mælist 31 (33) 35 cm. Nú eiga að vera á prjóninum jafnmargar lykkjur og í upphafi eða 148 (152) 156 . Prjónaðu áfram þar til bolurinn mælist 36 (38) 40 cm. Settu þá 10 (10) 11  lykkjur á hjálparband/nælu undir hendi (helming hvorum megin við prjónamerkin).
  

Ermar

Fitjaðu  upp  með aðallit á sokkaprjóna nr. 4,5, 30 (32) 34 lykkjur. Prjónaðu tvöfalt perluprjón eins og er á bolnum næstu 14 umferðir. Skiptu yfir á prjóna nr. 5 og prjónaðu slétt prjón. Auktu í fyrstu sléttu umferðinni út um 6 lykkjur jafnt yfir umferðina. Þá eru á prjónunum 36 (38) 40 lykkjur. Settu prjónamerki á miðju þ.e. milli síðustu og fyrstu lykkju umferðarinnar. Prjónaðu áfram þar til ermin mælist 8 cm. Auktu þá út um tvær lykkjur við prjónamerkið (eina hvorum megin við merkið). Prjónaðu áfram og auktu út um tvær lykkjur undir miðermi í 8. (8.) 7. hverri umferð þar til á prjóninum eru 54 (56) 60  lykkjur. Prjónaðu þá áfram þar til ermin mælist 43 (44) 45 cm.  Settu þá 10 (10) 11 lykkjur á hjálparband/nælu (helming hvorum megin við merkið). Prjónaðu hina ermina eins.

Axlastykki

Sameinaðu bol og ermar í fyrstu umferð. Prjónaðu fyrri ermina 44 (46) 49 lykkjur. Prjónaðu því næst afturstykki bolsins 64 (66) 67  lykkjur og seinni ermina 44 (46) 49  lykkjur. Prjónaðu að síðustu framstykkið 64 (66) 67 lykkjur. Nú eiga að vera á prjóninum 216 (224) 232 lykkjur. Prjónaðu nú munstrið og taktu út eins og teikningin sýnir. Í fyrstu úrtökuumferð tekur þú út lykkjur með því að prjóna tvær lykkjur saman en í næstu úrtökuumferð með því að taka eina lykkju óprjónaða fram af, prjóna þá næstu og steyptu síðan óprjónuðu lykkjunni yfir hana. Þessar tvær úrtökuaðferðir notar þú til skiptis upp bolinn. (Ef þú vilt getur þú tekið út með því að prjóna alltaf tvær lykkju saman en þá þarftu að hnika þeim svolítið til þannig að úrtakan sé ekki alltaf yfir sömu lykkjunum svo ekki myndist skárönd). Í síðustu umferðinni tekur þú út  13 (14) 15  lykkjur jafnt yfir  umferðina. Þá eru á prjóninum 68 (70) 72 lykkjur. Prjónaðu perluprjón eins og er neðan á peysunni 4 umferðir og felldu hæfilega laust af svo hálsmálið verði ekki of þröngt.

Frágangur

Gakktu frá lausum endum. Lykkjaðu saman undir höndum. Þvoðu peysuna og þurrkaðu á stykki.

Gaman væri að þú kvittaðir að lestri loknum svo ég sjái að þú hafir kíkt á þetta. Til að geta það þarftu þó  að velja í litla flipanum fyrir neðan kommentið og skrá þig.  Og endilega deildu þessu líka á facebook fyrir mig.

Sunday, 8 April 2012

SSK

Lengi vel kunni ég ekki að taka út nema á einn hátt þegar úrtakan átti að hallast til vinstri. Ég tók eina lykkju óprjónaða af prjóninum, prjónaði þá næstu og steypti síðan óprjónuðu lykkjunni yfir. En þetta gat verið nokkuð seinleg leið sérstaklega í miklu blúndu- eða gataprjóni þegar oft þurfti að gera úrtökur.

Það má segja að það hafi verið mikil uppgötvun fyrir mig þegar ég komst að því að það væri hægt að fara öðruvísi að og útkoman yrði eins. Núna tek ég tvær óprjónaðar lykkjur af prjóninum, eina í einu, og prjóna þær síðan saman með því að fara aftan í þær. Þessi aðferð er kölluð á ensku SSK (slip, slip, knit) en hefur ekki fengið nafn hérlendis svo ég viti.

Ef þú kannt ekki þessa aðferð mæli ég með að þú prufir hana á þessu einfalda og þægilega munstri. Munstrið byggir á 9 + 2 lykkjum og 10 umferðum. Það merkir að þú fitjar upp 9 lykkjur eða margfeldi af 9, þ.e. 18, 27, 36... og bætir svo 2 lykkjum við svo kanturinn verði eins báðum megin. Fyrstu umferðina gerir þú frá réttunni. Í prufunni á myndinni  bætti ég einnig við garðaprjónskanti til að prufan rúllaðist ekki upp.

Gaman væri að þú kvittaðir að lestri loknum svo ég sjái að þú hafir kíkt á þetta. Til að geta það þarftu þó  að velja í litla flipanum fyrir neðan kommentið og skrá þig.  Og endilega deildu þessu líka á facebook fyrir mig.

Saturday, 7 April 2012

Sólbakkavettlingarnir

Þegar ég var lítil fór ég oft til ömmu minnar. Hún átti heima við aðalgötu bæjarins (sem þá var reyndar bara lítið þorp) svo það var  gjarnan í leiðinni að fara þangað. Heima hjá ömmu var alltaf gaman og gott að koma. Þangað komu líka svo margir að í minningunni var staðurinn miðstöð ættingja og vina.

En tilgangur minn var ekki alltaf að hitta ættingja, sérstaklega ekki meðan ég var lítil. Ég var nefnilega eins og svo margir krakkar, sífellt að týna vettlingunum mínum. Og þá var gott að eiga ömmu sem var mikil prjónakona. Amma átti nefnilega alltaf vettlinga á lager enda prjónaði hún fyrir Eden í Hveragerði vettlinga sem seldust í hundruða ef ekki þúsunda vís.

Amma prjónaði vettlingana alltaf úr tvöföldum lopa, þæfði þá og kembdi. Þetta voru dásamlega mjúkir og fallegir vettlingar og sérlega hýir. Hún prjónaði þá venjulega úr tveimur litum og munstrin voru oft svipuð. Hún byggði þau á tölunni 4 og oftast mynduðu þau þríhyrnt form eins og sést á myndinni af grænu/hvítu vettlingunum sem amma prjónaði.

Vettlingarnir á myndinni hér til hægri eru prufa sem ég gerði einu sinni til að athuga hvort það væri hægt að kemba með dýrakambi. Þeir eru ekki alveg eins og vettlingarnir hennar ömmu því þessir eru prjónaðir úr einbandi og einföldum lopa og því koma þeir ekki eins vel út þegar þeir eru kembdir. En  munstrið er hins vegar það sama og amma notaði oft.


Þegar rýnt er í myndina sést að vettlingarnir til vinstri eru óþvegnir og ókembdir en vettlinginn hægra megin er búið að þvo kemba.

Ef þú vilt prufa að gera svona vettlinga er best að prjóna þá úr tvöföldum lopa á prjóna nr. 4,5. Svo þværðu þá og kembir á meðan þeir eru ennþá rakir. þú gerir það á þann  hátt að þú leggur vettlinginn  á borðbrún og kembir lítinn hluta í einu, alltaf í sömu átt. Byrjaðu að kemba fremst á vettlingnum og fikraðu þig síðan upp þar til þú kemur að stroffinu, þar skaltu hætta enda er ekki fallegt að kemba stroffið. Svo kembir þú þumalinn. Það er einnig hægt að kemba vettlingana að innanverðu til að þeir verði mýkri viðkomu og einnig hlýrri. En þú þarft að fara varlega og kemba þá þversum en ekki langsum eins og á réttunni.

Friday, 6 April 2012

Þá er ég komin með eigið blogg

Hæ, ég heiti Guðbjörg Dóra og hef um langt skeið verið forfallin í prjónadellunni. Ég hanna og prjóna af hjartans list nánast alla daga ársins, fátt veitir mér meiri ánægju en prjónaskapurinn. En mér finnst líka gaman að deila áhugamálinu með öðrum. Því hef ég ákveðið að byrja að blogga og deila þannig prjónadellunni með þeim sem vilja lesa þessi skrif mín.
 
Ég ákvað að kalla bloggið Krunkið á Klakanum enda verð ég eins og hrafninn, safna (prjóna)glingri inn á síðuna og krunka svo eitthvað um herlegheitin. Klakinn er annað nafn á Íslandi, einhvers konar gælunafn. Undirtitillinn, Knit on Ice eða Prjónað á Klakanum er settur til gamans og er eins og hinn hluti titilsins bara skemmtilegur orðaleikur.

Í blogginu mínu muntu sem sagt finna uppskriftir og hugleiðingar um prjónaskap. Smám saman mun  verða hér safn uppskrifta og leiðbeininga um eitt og annað sem viðkemur prjónaskap.
 
Uppskriftin sem ég set hér inn í dag er af húfu sem ég gerði upphaflega fyrir Dagskrána á Selfossi. Margir hafa að undanförnu beðið mig um þessa uppskrift og þar sem hún er ekki ein af þeim sem komið hafa út hjá Prjónakistunni, þar sem flestar mínar uppskriftir hafa fengist þá ákvað ég að setja hana hér.

Húfa

Efni og upplýsingar
Mitu garn  50% ull og 50% alpaka

2 dökkbrúnar (SFN 35)
1 gulbrún (7255)
1 gul (6240)
Einnig má nota hvaða annað garn sem gefur sömu prjónfestu - um 100 metrar eru í 50 gramma dokku


Prjónafesta 22 lykkjur = 10 cm
40 cm hringprjónar nr. 3,5 og 4, sokkaprjónar nr. 4. Skiptu um prjónastærð ef þessir gefa ekki rétta prjónfestu.

Húfa
Fitjaðu upp 120 lykkjur á prjón nr. 3,5 með dökkbrúnu Mitu garni. Prjónaðu stroff, 2 lykkjur sléttar og 2 brugðnar til skiptis næstu 4 umferðir. Prjónaðu þá þrjár rendur í húfuna. Hver rönd er 2 umferðir af gulbrúnu og svo hefur þú 2 umferðir af brúnu á milli. Þegar rendurnar þrjár eru komnar prjónar þú með dökkbrúnu þar til stroffið mælist 8 cm. Prjónaðu þá eina umferð til viðbótar og auktu út um 12 lykkjur jafnt yfir umferðina.

Skiptu því næst yfir á prjón nr. 4 og prjónaðu hér eftir eingöngu slétt prjón. Byrjaðu á 2 dökkbrúnun umferðum. Prjónaðu því næst munstrið. Þegar því er lokið prjónar þú eingöngu með dökkbrúnu. Prjónaðu þar til  húfan mælist 21 cm frá uppfiti. Í síðustu umferðinni skaltu taka út 4 lykkjur jafnt yfir umferðina til að jafna lykkjufjölda fyrir úrtöku, þá verða á prjóninum 128 lykkjur.

Úrtaka
Úrtakan myndar stjörnu á kollinum og tekið er út í annarri hverri umferð. Prjónaðu 14 lykkjur og síðan næstu 2 lykkjur saman til skiptis út umferðina. Prjónaðu eina umferð án úrtöku. Í næstu umferð fækkar þú um eina lykkju á milli úrtaka og prjónar 13 lykkjur og síðan 2 saman til skiptis út umferðina og síðan aðra umferð án úrtöku. Haltu síðan úrt ökunni áfram á sama  hátt og fækkaðu sléttu lykkjunum á milli úrtaka um eina  í hverri munsturumferð. Notaðu sokkaprjóna þegar lykkurnar eru orðnar of fáar fyrir hringprjón. Þegar 16 lykkjur eru eftir skaltu prjóna 2 og 2 lykkjur saman út umferðina. Dragðu síðan bandið í gegnum lykkjurnar 8 sem eftir eru, hertu að og gakktu frá endum.

Munstur