Nú er komið
að lokaverkefninu í blekkingarprjóninu og ekki seinna vænna þar sem nú er komið að mánaðarlokum og blekkingarþemanu þar með að ljúka. Myndin sem nú er prjónuð er heldur flóknari en rendurnar sem áður hafa birst hér á blogginu. Ég bjó til munstur sem getur verið skemmtilegt í eitt og annað. Hægt er að prjóna púðaborð eða borðtusku eða setja myndina hreinlega sem skraut framan á peysu.
Myndir sem prjónaðar eru með blekkingarprjóni eru ekki sjáanlegar nema frá ákveðnu sjónarhorni. Þegar horft er beint framan á prjónið sjást bara rendur en þegar sjónarhorninu er breytt kemur blekkingin í ljós.
Þegar þú prjónar munstrið er gott að nota prjónamerki þar sem láréttu rauðu strikin eru í munstrinu. Einnig er gott að hafa reglustiku til að setja fyrir ofan línuna sem verið er að prjóna eða eitthvað annað sem hjálpar til við að fylgja munstrinu.
Ef þú skoðar myndina vel sérðu að það myndar rendur. Hluti af hverri rönd og oft meginhlutinn myndar garð en stundum er röndin líka slétt. Mundu að hver umferð
í munstrinu sýnir eina slíka rönd þ.e, tvær umferðir í sama lit. Fyrri umferðin er alltaf prjónuð
slétt í þeim lit sem garðurinn er í en í seinni umferðinni er munstrið á
myndinni prjónað.
Ég prjóna eftir munstrinu frá hægri til vinstri, í sömu átt
og ég prjóna þar sem ég er vönust því frá öðrum prjónauppskriftum. Við það
speglast myndin. Þeir sem ekki vilja speglun í myndina þurfa að lesa hana frá hinni áttinni þar sem munstrið er
prjónað frá röngu. Myndin af kúnni er þó nánast eins báðum megin við miðju svo
í þessu tilviki skiptir speglunin alls engu máli.
Munsturteikningin
Svona gerir þú fyrstu umferðirnar
Þegar þú prjónar þetta munstur áttu að prjóna 2 umferðir í einu með hvorum lit, þ.e. einn garð (garður er þó oft með sléttum lykkjum. sbr. umf. 2 og margar fleiri). Hvítur litur í munstrinu táknar að prjónuð er brugðin lykkja en hann táknar ekki nýjan lit.
Allar oddatölur í munstrinu sýna umferðir sem prjónaðar er með ljósari litnum. Þær eru litaðar gráar í munstrinu. Sléttu tölurnar í munstrinu sýna umferðir sem prjónaðar eru með dekkri litnum. Þær hafa ávallt svartan flöt einhvers staðar í munstrinu.
Þegar umferðin er öll einlit eins og umferð 1 er prjónað svona. 1. fyrri umferð garðsins er ávallt slétt prjón sama hvernig munsrið á teikningunni er. Í umferðinni sem prjónuð er til baka er lituð lykkja prjónðu slétt en hvít lykkja prjónuð brugðin.
Þú fitjar
upp með ljósa litnum 52 lykkjur og snýrð við.
1. garður.. Með dekkri
litnum prjónar þú 1 slétta umferð.
2. umf. Snúðu við og prjónaðu 6 brugðnar, 1 slétta,
8 brugðnar, 1 slétta, 17 brugðnar, 1 slétt, 13 brugðnar, 1 slétt, 4 brugðnar.
Þegar stykkinu er lokið er gaman að skoða hvernig myndin kemur í ljós á bakhliðinni.
Þegar stykkinu er lokið er gaman að skoða hvernig myndin kemur í ljós á bakhliðinni.
No comments:
Post a Comment
Það er alltaf gaman að lesa athugasemdir ykkar við færslurnar mínar svo endilega skrifið smá skilaboð til mín.