2+2 með sléttum lykkjum á milli. |
Þær sem koma í
Prjónakistuna taka flestar eftir fallegum kaðlatrefli sem oft er á gínunni við útidyrnar. Það er
alltaf jafn gaman að fylgjast með þeim sem skoða hann nánar og taka eftir
að hann er eins báðum megin. Flestar snúa honum fram og til baka til að
fullvissa sig um að þær séu að taka rétt
eftir. Venjan er nefnilega sú að kaðlaprjón er ekki fallegt á röngunni þótt
þessi trefill sé það.
- -
Hvernig
er þetta eiginlega hægt? segja þær og stara undrandi á okkur og kaðlana til skiptis.
- -
Þetta
er nú ótrúlega auðvelt, svara ég auðvitað að bragði og bæti svo við að það sé nú reyndar allt
auðvelt sem maður kunni.
Ég hef haldið fjölmörg námskeið og
leitt konur (ekki karla því þeir láta
ennþá ekki
sjá sig á námskeiðum hjá mér) í allan sannleikann um það hvernig kaðlarnir eru
prjónaðir. En nú er svo komið að ég hef ákveðið að hafa ekki fleiri námskeið í
þessu kaðlaprjóni. Ekki er það þó svo að ég vilji ekki að fleiri læri þetta. Nei
- síður en svo. Nú ætla ég bara að leiða alla þá sem vilja heyra (eða réttara
sagt sjá á prenti a.m.k.) í sannleikann um það hvernig þessir dásamlegu kaðlar
eru prjónaðir.
2+2 til vinstri & 1+1 til hægri. |
Hugsaðu þér eitthvert einfalt prjón sem er eins báðum megin. Hvað sérðu?
Sjálfsagt datt þér fyrst í hug stroff. Það er jú alltaf eins á framhlið og
bakhlið. Galdurinn á bak við kaðlana er í rauninni jafn einfaldur. Þú prjónar
kaðalinn sjálfan með sléttum og brugðnum lykkjum eins og stroff og svo getur þú
haft perluprjón eða garðaprjón á endunum, allt eftir smekk og aðstæðum.
Hverjar tvær lykkjur sem þú prjónar, þ.e. ein slétt og ein brugðin
mynda pör sem líta verður á sem eina heild. Ef þú fitjar upp 8 lykkjur í kaðal og
prjónar eina slétta og eina brugðna til
skiptist skaltu víxla 4 lykkjum (1 sétt, 1 brugðin, 1 slétt, 1 brugðin). Á þann hátt verður kaðallinn
eins báðum megin.
Ýmsar snúningsleiðir eru færar. |
Svo er líka hægt að gera nokkur önnur afbriðgi af köðlum
sem eru fallegir báðum megin. Kaðall
með einni sléttri og annari brugðinni
lykkju verður frekar flatur. Ef þú prjónar aftur á móti tvær sléttar og tvær
brugðnar verður kaðallinn upphleyptari. Enn önnur útkoma fæst síðan ef þú notar
klukkuprjón eða hálfklukkuprjón í kaðalinn. En svo er bara um að gera að prófa
sig áfram og finna út hvað manni finnst flottast hverju sinni.
Einfaldur trefill með tveimur köðlum
og garðaprjónskanti
Kaðallinn í uppskriftinni er mjög svipaður þeim á myndinni.
Kaðallinn í uppskriftinni er mjög svipaður þeim á myndinni.
1
1. umferð: 4 sléttar lykkjur, [1 slétt, 1 brugðin] 4 sinnum, 4 sléttar lykkjur, [1 slétt, 1 brugðin] 4 sinnum, 4 sléttar.
2.-7. umferð: Eins og umferð 1.
8. umferð: Umferðin er prjónuð
eins og allar hinar umferðirnar að undanskildu því að þú gerir kaðalsnúning í
strofflykkjunum (sléttu og brugðnu). *Prjónaðu fyrstu 4 lykkjurnar sléttar.
Taktu síðan næstu 4 lykkjur og settu á hjálparprjón og leggðu hann fram fyrir.
Prjónaðu nú næstu 4 lykkjur sléttar og brugðnar eins og áður og síðan
lykkjurnar 4 sem þú settir á hjálparprjóninn.* Endurtaktu frá * til * einu
sinni. Endaðu síðan á að prjóna síðustu
4 lykkjurnar sléttar.
Endurtaktu umferðir 1-8 þar til
þeirri lengd er náð sem þú vilt hafa á treflinum.
Takk fyrir þetta Guðbjörg. Ég er búin að vera svo lengi á leið á námskeið að læra þessa kúnst og nú kemur þú færandi hendi :)
ReplyDeleteÞað er alltaf gaman að læra eitthvað nýtt og það gleður mig mjög mikið að þú getur nýtt þér þessi skrif mín Guðrún.
ReplyDeleteFrábært
ReplyDelete