Tuesday, 4 June 2013

Prjónaklúbbarnir mínir

Ég er í tveimur prjónaklúbbum sem kemur líklega engum á óvart sem þekkir mig. Annar er hefðbundinn í líkingu við saumaklúbb þar sem við mætum með nokkuð reglulegu millibili að kvöldi til og prjónum. Hver kemur með það sem hún er að prjóna og auðvitað eru það ólík verkefni sem við erum að fást við. Svo er spjallað um allt milli himins og jarðar, borðuð heil reiðinnar ósköp af kökum og kruðeríi. 

Hinn klúbburinnn er ólíkur hinum að því leyti að við prjónum allar sams konar verkefni sem verður að fela það í sér að það sé krefjandi eða kenni okkur eitthvað nýtt. Samskipti okkar fara mest fram á netinu en af og til hittumst við, berum saman bækur okkar og veljum nýtt verkefni. Verkefnið er alltaf valið á þann hátt að allar í klúbbnum tilnefna eitt verkefni. Svo skoðum við hugmyndirnar og kjósum um þær þegar við hittumst næst. Það sem fær flest atkvæði prjónum við. Þá þýðir ekkert að mögla, allar verða að prjóna það sem við höfum kosið, svona virkar bara lýðræðið.
Fyrsta verkefni ársins 2013 voru sokkar sem við kölluðum Tyrkjann af því að í uppskriftinni segir að þeir sæki innblástur í hefbundna tyrkneska sokka. Mínir voru nú ekki jafn litríkir og þeir eru í Tyrklandi en engu að síður áhugaverðir.
 Næst voru prjónaðir vettlingar sem við nefndum Egyptann af því að munstrið í þeim er fengið frá ævafornum sokkum sem fundust í Egyptalandi. Talið er að þessir sokkar séu frá 12. öld ef ég man rétt.

Þegar vettlingaprjóninu lauk skelltum við okkur í sokka á nýjan leik. Að þessu sinni voru það Belgarnir. Dásamlegir sokkar sem er svo ótrúlega skemmtilegt að prjóna að margar okkar prjónuðu mörg pör af þeim. Á myndinni er hluti af þeim sokkum sem hópurinn prjónaði.

En við prjónuðum líka eitt og annað til hliðar við skylduverkefni klúbbsins. Við köllum þau hliðarverkefnin. Stundum prjónum við svipuð hliðarverkefni enda er auðvelt að hafa áhrif á hinar þegar við póstum inn myndum á netið af eitthverju skemmtilegu sem við erum að gera. Þessi sokkar sem eru á ýmsum stigum eru dæmi um eitt af hliðarverkefnunum okkar.
 
Í gegnum þennan prjónaklúbb hef ég eignast frábæra vini sem deila með mér áhugamálinu. Sífellt finnum við ný prjónaverkefni sem kenna okkur eitthvað nýtt og auka færni okkar en mestu máli skiptir þó heil og góð vinátta sem gerir það að verkum að við hlökkum til hverrar stundar sem við eigum saman.

Sunday, 2 June 2013

Heklað eftir táknum á rússneskri síðu

Stundum finnur maður fjársjóði á netinu. Stundum eru það flottar flíkur sem gaman er að skoða myndir af, leiðbeiningar og kennsla í prjóni eða hekli og stundum eru það munstur á einhverjum síðum sem fanga hugann. Eitt af þeim munstrum sem ég hef rekist á mátti sjá á síðu Prjónakistunnar í gær. Þar var mynd af gráum kraga sem einhver hafði gert. Á síðunni sem hann var á var síðan slóðin að upprunalegu myndinni, forláta stuttbuxum sem ég gæti reyndar ekki hugsað mér að ganga í. 

Þegar ég sé svona flott munstur langar mig alltaf að prófa. Og stundum er ég heppnari en í annan tíma. Það átti við að þessu sinni því á þessari rússnesku síðu var munstrið teiknað upp. Ég þurfti því alls ekki að rýna í hekluðu flíkina til að gera eins.



Jæja, en seinni partinn í gær var svo kominn tími til að prufa munstrið. Tákning eru jú alþjóðleg svo það skipti engu þótt ég skildi ekki hvað stóð við hlið þeirra. Úff, sem betur fer því ekki skildi ég eitt einasta orð af því sem þar stóð. Fyrst byrjaði ég á að hekla prufu fram og til baka. Það gekk ágætlega en svo ákvað ég að skella mér í að hekla kraga og sjá hvernig það gengi að tengja saman í hring án þess að það sæist.

Ég fitjaði frekar laust upp margfeldi af tölunni 10. Útkoman varð 70 loftlykkjur. Stærðina ákvað ég út frá því hvað kæmist með góðu móti yfir höfuðið á mér. Svo heklaði ég fyrstu umferðina. Hún var einföld stuðlar, loftlykkjur og fastapinnar.
Þá var komið að næstu umferð. Þar þurfti að gera stuðla sem voru svolítið upphleyptir. Því miður veit ég ekkert hvað þeir kallast því þrátt fyrir að ég hafi heklað einhver reiðinnar býsn á árum áður lærði ég táknin öll eftir sænskum blöðum og lagði mig aldrei fram við að læra þau á íslensku. Það kemur í bakið á mér í dag. En hvað um það. Ég gerði þessa stuðla með því að stinga heklunálinni undir stuðulinn miðjan eins og sést á myndinni og upp hinum megin við hann í stað þess að stinga ofan á hann eins og venja er. Táknið fyrir svona stuðul er stuðlatáknið með lykkjunni sem er opið til vinstri.
Þegar fyrstu tvær umferðirnar voru búnar var komið að bobblum, ekki þessu hefðbundnu þó. Táknið sýnir þrjú strik sem koma saman að ofan og neðan og mynda einhvers konar lauf. Bobblurnar eru gerðar með því að slá bandi upp á heklunálina eins og maður sé að fara að gera stuðul. Svo stingur maður nálinni í fastapinnan og sækir bandið, en í stað þess að klára að hekla stuðulinn slær maður aftur uppá nálina og sækir bandið aftur og svo enn einu sinni. Þar með var maður kominn með fullt af böndum á nálina. Svo sló ég upp á nálina einu sinni enn og dró það í gegnum allar lykkjurnar og lokaði svo öllu saman með loftlykkju.
Næsta umferð var alveg eins nema nú voru bobblurnar ekki gerðar inn í neinn fastapinna heldur um loflykkjubandið.
Og líka næstu tvær þar á eftir.

Þegar þessar umferðir voru búnar byrjaði munstrið í rauninni upp á nýtt en færist þó aðeins til og bobblurnar klufu stuðlana í miðju.
Svo smám saman fæðist þetta líka fína munstur. Nú var þetta orðið spennandi svo ég hélt áfram. Áður en við var litið hafði ég heklað úr tveimur garndokkum og sá fram á að ég yrði að ná mér í eina enn til að geta gert kragann nógu háan. Heklið er alltaf garnfrekt en á móti kemur að flíkur úr því eru hlýjar og góðar. Allt hafði gengið upp, munstrið var fallegt og samskeytin sáust ekki sem er nokkuð nauðsynegt þegar heklað er í hring.

                                                                          
Og hér er svo afrakstur gærdagsins.

 Og ekki er rangan neitt ljót heldur.


Vonandi getur einhver haft ánægju af þessum hugleiðingum mínum og jafnvel nýtt sér upplýsingarnar sem ég hef sett í þennan pistil. Endilega sýnið mér að þið hafið lesið þetta og hvað ykkur finnst um þetta munstur með því að skrifa komment hér fyrir neðan eða undir færsluna um þetta á síðu Prjónakistunnar en slóðin er hér .




Sunday, 26 May 2013

Heklbókin mín - prufa 2

Tvö skref áfram og eitt aftur á bak er ágæt lýsing fyrir heklið sem ég ætla að segja frá í dag. Heklið er mjög fallegt og vel til þess fallið að nota í teppi eða hvað annað sem þarf að vera fallegt báðum megin. Til að búa til hið fullkomna teppi með þessu hekli þar ekki annað en að bæta við fallegum kanti.



Fyrst er að fitja upp hæfilega margar lykkjur. Í munstrinu eru lykkjur sem eru margfeldi af 3. Hvert munstur er sem sagt 3 lykkjur og svo er það ekki nema 2 umferðir. Í munstrinu getur samt verið fallegt að hafa eina aukalykkju á hvorum kanti til að hann verði jafn og fallegur og þar sem það þarf einnig að gera eina loftlykkju þegar snúið er við þarf ekkert að huga að neinum aukalykkjum til viðbótar við margföldunartöluna þegar fitjað er upp nema til að huga að lengdinni.

Þegar þú hefur fitjað upp þann fjölda af lykkjum sem þú ætlar að nota skaltu gera eina umferð af fastapinnum. Mundu að fyrsti fastapinninn er gerður í lykkju nr. 2 frá nálinni.



Næsta umferð er pínulítið snúnari en samt ekkert erfið. Byrjaðu á að gera  4 loftlykkjur eða 1 fastapinna í fyrstu lykkjuna og bættu svo við 3 loftlykkjum. Aðferðirnar tvær gefa mismunandi útkomu og það er bara um að gera að prófa og sjá hvor þér þykir fallegri.

Og svo er það munstrið sjálft:
*Hoppaðu yfir 1 fastapinna og gerðu svo stuðul í næstu tvo fastapinna. Nú er komið að þessu skemmtilega, gerðu 1 stuðul í fastapinnann sem þú slepptir (já þú ferð aftur á bak). * Endurtaktu frá *til * þar til þú ert komin út á enda en þar gerir þú 1 stuðul ef þú hefur ákveðið að hafa staka stuðla á kantinum. Gerðu svo 1 loftlykkju og snúðu við. Ef ekki er stakur stuðull á kantinum snýrðu auðvitað bara við eftir munstrið.
Nú endurtekur þú þessar tvær umferðir, fastapinnaumferðina og stuðlaumferðina þar til rétt lengd er komin.

Að lokum eru hér myndir sem sýna prufuna mín að framan og að aftan. Eins og þú sérð er ekki mikill munur á hliðunum. 
Nú er bara að taka fram heklunálina og æfa sig. Hver veit nema þetta eigi eftir að verða þitt uppáhalds munstur.

Endilega kvittaðu svo eftir lesturinn og segðu mér hvað þér finnst um munstrið. Þú getur hvort sem þú vilt kvittað hér eða á facebooksíðu PRJÓNAKISTUNNAR. 




Sunday, 19 May 2013

Heklbókin mín - prufa 1

Þegar ég var yngri hafði ég einstaka aðdáun á hvers kyns hekli. Ég heklaði líka heil ósköp á þeim tíma. Á þessu hekltímabili mínu heklaði ég t.d. mjög marga dúka af öllum stærðum og gerðum. Þeir voru svo skemmtilegir og maður lærði alltaf eitthvað nýtt þegar maður heklaði þá. 

Í dag hekla ég þó ekki mikið nema helst sjöl og alls konar prufur. Prufurnar eru ýmist hekl sem ég lærði áður og einnig það sem ég hef verið að læra á netinu í dag. Ég geri prufur til að átta mig á heklinu og sjá til hvers það er nýtilegt. Heklið sem ég ætla að sýna ykkur í dag gæti t.d. sómst sér vel í langsjali og einnig er þetta hekl vel nothæft í teppi.

Prufa 1

Fitjaðu upp loftlykkjur sem eru margfeldi af 10 og bættu 5 loftlykkjum við. Í prufunni er ég með er ég 45 loftlykkjur.



1. umferð: Heklaðu 5 tvöfalda stuðla (og gerðu þann fyrsta í 5. loftlykkju frá nálinni.) Hoppaðu yfir 4 loftlykkjur og gerðu 1 tvöfaldan stuðul í næstu loftlykkju. Endurtaktu þetta út umferðina.


2. umferð: 4 loftlykkjur, *5 tvöfaldir stuðlar um loftlykkjubandið, 1 tvöfaldur stuðull í 5. stuðul (síðasta stuðulinn), 4 loftlykkjur.* Endurtaktu frá * til * út umferð. Endaðu á að gera 1 tvöfaldan stuðul í næstu loftlykkju við.


3. umferð og áfram. Nú á að endurtaka umf. 2 þar til réttri lengd er náð. Eftir að heklaðar hafa verið 8 umferðir er prufan orðin svona.


Prufan var hekluð á heklunál nr. 3 úr baby garni. Hæðin á prufunni reyndist 17 cm og breiddin 15 cm.

Endilega kvittið svo hér fyrir neðan eða á facebooksíðu Prjónakistunnar svo ég sjái hvort þið hafið einhverja ánægju af þessu bloggi mínu. 

Sunday, 7 April 2013

Snædís

Snædís er nýjast uppskriftin mín. Hún samanstendur af þremur stykkjum sem nota má sem sett eða hvert í sínu lagi. Húfa og vettlingar eru auðvitað ekki það sem við erum að fara að nota á næstu mánuðum, sem betur fer. Það getur þó verið gott að vera tilbúinn með slíkt þegar vetur gengur aftur í garð. Já og svo er bara frábært að byrja strax að prjóna í jólagjafir. 

Sumarið okkar er ekki svo gott að við þurfum ekki stundum að skella yfir okkur léttu sjali, eða ermum. Sjalið í uppskriftinni gefur fjölmarga möguleika eins og myndirnar sýna.

Ef þig langar að eignast uppskriftina að þessu setti þá sendu póst á prjonauppskriftir@gmail.com 
Uppskriftin kostar 500 krónur og er rafræn.

Sjalið er hægt að hneppa að aftan og mynda þannig ermar.
Hefðbundið er að leggja sjal yfir axlirnar
Svona lítur sjalið út að framan þegar það er hneppt að aftan.

Auðvelt er að vefja sjalinu um höfuðið.


Þegar sjali er vafið um hálsinn verður útkoman of skemmtileg.

Sjalið orðið að ágætis kraga.
Húfa og kragi.

Góðir vettlingar standa alltaf  fyrir sínu.



Friday, 16 November 2012

Skafrenningur

Í dag er dagur íslenskrar tungu og afmælisdagurJónasar Hallgrímssonar skálds og nýyrðasnillings. Á þessum degi hugleiða margir falleg orð sem til eru í tungumálinu okkar. Þess vegna valdi ég pistlinum heitið Skafrenningur, enda finnst mér það sérlega áhugavert orð þótt veðrið sem það lýsir sé mér ekki að skapi.

Þegar kominn er 16. nóvember er líka kominn sá tími árs sem vænta má leiðinda í veðurfari. Í dag er kalt, snjór er yfir öllu og sumarfötin duga alls ekki lengur. Í morgun langaði mig til að vefja um hálsinn á mér hlýjum prjónuðum kraga til að verjast næðingnum en átti ekki neinn. Já, við erum ekki alltaf tilbúin með vetrarfatnaðinn þegar fyrsta kuldakastið kemur. Því ákvað ég að koma í dag með uppskrift að kraga sem væri allt í senn, fallegur, fljótprjónaður og auðveldur. 

En kraginn er ekki bara sérlega fljótprjónaður, hann er líka góð æfing í að taka út til vinstri. Tvær leiðir eru algengastar við slíkar úrtökur og eru þær báðar útskýrðar hér að neðan. Þær gefa sömu, eða svipaða útkomu en misjafnt er hvað hverjum fellur í geð. Veldu bara þá leið sem þú vilt. Sjálf nota ég oftast aðferðina sem ég kýs að kalla ttp (sbr. ssk á ensku).

Úrtaka til vinstri
Tvær aðferðir eru algengastar þegar tekið er út til vinstri:
1.       Taktu eina lykkju óprjónaða af prjóninum, prjónaðu næstu lykkju og steyptu síðan óprjónuðu lykkjunni yfir hana.
2.       Taka, taka, prjóna  (ttp): - Taktu 2 lykkjur óprjónaðar af prjóninum (eina í einu) stingdu vinstri prjóninum í lykkjurnar og prjónaðu þær saman með því að fara aftan í þær.

Þetta myndband sýnir hvernig ttk (ssk) er gert:

http://www.youtube.com/watch?feature=player_embedded&v=fUoOybvJeKg

Kragi með úrtöku til vinstri

Fitjaðu upp á hringprjón nr 6, 74 lykkjur fyrir einfaldan kraga en 149 lykkjur fyrir tvöfaldan, þ.e. kraga sem á að vefja um hálsinn. Tengdu saman í hring. Ef þú vilt breyta lykkjufjölda miðaðu þá við að fitja upp margfeldi af 5 og bættu síðan 4 lykkjum við. 



Myndin er af munstrinu. Allar umferðir eru prjónaðar eins. Þú slærð bandi upp á prjóninn, prjónar tvær lykkjur saman til vinstri, prjónar síðan 3 lykkjur sléttar. Þetta endurtekur þú þar til þeirri hæð er náð sem þú vilt hafa á kraganum. Felldu þá af og gakktu frá endum.

Svo er líka hægt að prjóna kragann með halla til hægri. Þá er farið svona að:

Allar umferðir eru eins:  Prjónaðu 3 lykkjur sléttar, prjónaðu 2 lykkjur saman, sláðu bandi um prjóninn.

Friday, 26 October 2012

Áskorunin

Það er svo gaman að leika sér jafnvel þótt maður sé fullorðinn. Um daginn brá ég á leik á facebooksíðu Prjónakistunnar og bað fólk um að setja inn nafn á einum lit. Sjálf setti ég tölur á blað og stakk þeim í umslag. Ég var ákveðin að prjóna úr þeim litum sem væru að baki tölunum og finna út úr því í Prjónakistunni á miðvikudagskvöldi.

Á Prjónakistusíðunni var einnig kosning í gangi um hvað ég ætti að prjóna úr þeim litum sem upp kæmu. Ég gaf upp nokkra möguleika og þeir sem kusu merktu flestir við sjalið.

Á miðvikudagskvöldinu var heilmikill spenningur í gangi í Prjónakistunni, ekki síst hjá mér sjálfri. Ég vissi að það gat verið erfitt að prjóna úr sumum litasamsetningum þannig að vel færi. En ég leit þó á það sem skemmtilega áskorun. Litirnir sem voru svo að baki tölunum (við töldum einfaldleg kommentin þar til komið var að þeim tölum sem voru á blaðinu) voru grænt, rautt, bleikt og svart. 

Sá fyrsti var grænn og ég var búin að gefa það upp að sá sem væri að baki fyrstu tölunni yrði aðalliturinn. Allir sem þekkja mig vita að grænt er ekki minn litur þannig að ljóst er frá upphafi að ég get ekki notað sjalið sjálf. Ákveðin vonbrigði auðvitað, en ég á marga vini sem örugglega vilja þiggja sjal af mér.

Svo var mér vandi á höndum. Rautt og bleikt er nú ekki alltaf talið passa vel saman og grænt og bleikt getur orðið mjög ljótt í samsetningu. Ég varð því að vanda verulega vel litbrigðin sem ég myndi nota. Eftir að hafa horft í kringum mig um stund komst ég að því að kambgarnið væri líklegast til árangurs í litasamsetningunni.

Svo ákvað ég að prjóna nú einu sinni eitthvað annað en eigin hönnun. Það er jú svo svakalega gaman að prjóna án þess að þurfa að teikna, reikna, spá og spekúlera endalaust. Minnug þess að ég hefði séð flott sjal á netinu fyrir nokkru ákvað ég að finna það aftur og kaupa mér uppskriftina. Og það gekk eftir. Sjalið sem ég valdi heitir Leftie og ég fann það á ravelry.com. Þá var bara að hefjast handa.



Í gærkvöldi (25. október) byrjaði ég svo á sjalinu. Og mikið var þetta skemmtilegt. Ég fitjaði upp örfáar lykkjur eins og stóð í uppskriftinni og ætlaði svona rétt að byrja, bara til að sjá hvernig litirnir kæmu út. Og svo byrjaði ég. Þetta leit nú frekar undarlega út í byrjun.


En það var svo spennandi að prjóna þetta að ég gat hreint ekki hætt fyrr en vel var farið að líða á kvöldið - og þá meina ég mjög vel því það voru allir komnir í fasta svefn þegar ég skreið loksins í bólið. Í morgun myndaði ég síðan dýrðina. Ég er sem sagt komin vel af stað en ekki nærri búin ennþá.