Í gær var einn af þessum dögum sem ég flokka sem mína uppáhalds prjónadaga, eða ætti ég frekar að segja prjónakvöld því auðvitað vann ég fullan vinnudag og hugsaði síðan um heimilið, tók til eldaði mat og gekk frá áður en ég gat komið mér fyrir í prjónahorninu mínu. En ég kalla hann uppáhalds af því ég gaf mér tíma til að hugaleiða næsta verkefni. Hönnunarferli á flík finnst mér alltaf svo heillandi og það að velta hlutunum fyrir mér, prufa aðferðir og læra eitthvað nýtt og að skapa er einfaldlega svo svakalega skemmtilegt.
Nú stendur til að prjóna peysu á sjálfa mig en ég er alls ekki búin að gera það upp við mig hvernig hún á að vera. Þess vegna settist ég niður, fletti munsturbókum og leitaði að hugmyndum. Ég var reyndar með eitt á hreinu, ég vildi ekki alveg hefðbundna lopapeysu enda á ég þær ansi margar og get skipt um daglega alla vikuna án þess að láta sjá mig í þeirri sömu tvo dag í röð - já og reyndar meira til.
Fyrst byrjaði ég á að prjóna prufu með skuggprjóni sem mér finnst svolítið flott í einlita peysu þar sem lykkjurnar á réttunni eru ekki sléttar heldur brugðnar með svolitum skuggum sem myndast þegar munsrið er gert. Þetta er ákaflega heppilegt munstur þegar maður ætlar að prjóna fram og til baka. Prufan er prjónuð úr tvöföldum lopa á prjóna nr. 7. Mig langaði að sjá hversu stóra prjóna þetta munstur þyldi.
Því næst prjónaði ég vöfllumunstur sem er mjög einfalt og fljótprjónað. Skemmtilegra er að prjóna það fram og til baka þar sem þá er bakhliðin að mestu prjónuð slétt. Ég hélt mig við grófu prjónana til að sjá samanburðinn á munstrunum í réttu ljósi.
Því næst prjónaði ég munsturprjón sem ég veit ekki neitt nafn á. Það var nokkuð spennandi prjón sem gæti hentað í þykkari peysur en einnig í kraga og ýmislegt fleira. Þetta munstur prjónaði ég eins og öll hin fram og til baka en allt eins má líklega prjóna það í hring.
Svo prjónaði ég garðaprjónsprufu með sama lopanum og áfram með prjóna nr 7. Það varð ansi bosmamikið og því augljóst að ég mun ekki nota svo grófa prjóna þegar ég að endingu prjóna peysuna, a.m.k. ekki ef ég hef eitthvað garðaprjón í henni.
Svo rakst ég á ansi hreint skemmtilegt munstur sem ég bara varð að prófa. Ég ákvað að prjóna það tvílitt þótt ég hafi ekki hugsað mér að hafa peysuna tvílita. Þetta er flóknara munstur en hin sem ég prófaði en skemmtilegt engu að síður og ekki svo seinlegt að prjóna það eftir að maður er kominn upp á lagið með það.
Nú gef ég mér tíma til að vega og meta prufurnar sem bættust í safnið mitt áður en ég tek nokkra ákvörðum um hvernig peysan mín verður. En þegar hún lítur dagsins ljós mun ég örugglega sýna hana hér.
Saturday, 10 January 2015
Friday, 12 September 2014
Holuhraunsvettlingarnir
Þá er vettlingatíminn alveg að skella á og ekki seinna vænna en skella sér í að prjóna nokkur pör svo allt sé nú tilbúið þegar á þarf að halda. Þessa dagana prjóna ég vettlinga með gosmunstri enda er ég eins og margir aðrir landsmenn með hugann við gosið í Holuhrauni og jarðhræringarnar þar um kring.
Efni: Sokkaprjónar nr 4,5 og 5.
Svartur, rauður og appelsínugulur plötulopi. Prjónað er úr tveimur þráðum af lopanum. Þar sem munstrið sýnir rautt á að prjóna úr einum rauðum þræði og einum appelsínugulum.
Stærð: Ætti að passa á unglingskrakka eða smáa kvenhönd.
Prjónaðu eftir munstrinu frá vinstri til hægri á öðrum vettlingnum en hægri til vinstri á hinum.
Fitjaðu upp, mjög laust, 26 lykkjur á prjóna nr. 4,5 með svörtum tvöföldum plötulopa. Tengdu saman í hring og prjónaðu 16 umferðir stroff eftir munstrinu til að fá nýtt og svolítið öðruvísi stroff. Gættu þess þó að hafa böndin ekki of stíf.
Athugaðu að þú getur líka prjóna rauðu doppurnar í stroffinu á þann hátt
að prjóna eina umferð með 1 svartri og 1 rauðri til skiptis og svo aðra
umferð þar sem þú tekur svörtu lykkjuna óprjónaða af prjóninum og
prjónar rauðu lykkjuna brugðna.
Þú getur líka haft hefðbundið stroff og prjónað 1 slétta og 1 brugðna til skiptis og jafnvel einfaldað munstrið með því að prjóna ekki munstur í fyrstu munsturumferðinni (umf. 22)
Þegar stroffi lýkur skiptir þú yfir á prjóna nr. 5 og prjónar slétt prjón og eykur út um 4 lykkjur í fyrstu umferð.
Um leið og þú prjónar 26. umferð setur þú 5 lykkjur á band (sjá bláu röndna í munstrinu) þar sem þumallinn á að koma.
Í umferð 46 er komið að því að prjóna saman lykkjur og móta fyrir fingrum. Hægra megin tekur þú tvær lykkjur óprjónaðar, eina í einu og prjónar þær síðan saman með því að prjóna aftan í lykkjurnar, sjá SSK á youtube. (Þú getur líka tekið eina lykkju óprjónaða, prjónað næstu lykkju og steypt síðan óprjónuðu lykkjunni yfir hana, úrtakan kemur svipað út.) Á vinstri hlið tekur þú út með því að prjóna saman tvær lykkjur. Eftir fyrstu tvær úrtökuumferðirnar er höfð ein umferð án úrtöku en annars er úrtaka í hverri umferð þar til 6 lykkjur eru á prjónunum. Þá slítur þú frá og dregur bandið í gegnum lykkjurnar.
Þumall: Taktu bandið úr og bættu við 1-2 lykkju í hvoru viki á milli umferða og fækkaðu í næstu umf (ef þörf krefur) og endaðu á að hafa 12 lykkjur á prjónunum. Prjónaðu 13 umferðir. Prjónaðu 2 saman og síðan 1 slétta til skiptis út umferðina. Slíttu frá, dragðu bandið í gegn og hertu að.
Gakktu frá endum, þvoðu vettlingana og leggðu til þerris.
Langi þig að minnka vettlingana þannig að þeir passi á yngri krakka getur verið gott að minnka prjónastærðina um 0,5 og að sama skapi stækka hana til að stækka vettlingana.
En það má breyta stærðinni á fleiri vegu. Það er t.d. hægt að fækka svörtu umferðunum á undan munstrinu en þá þarf að muna að færa þumlaumferðina til að hlutföllin verði ekki kolröng. Svo má líka fækka svörtu umferðunum á eftir munstrinu. Og þriðja atriðið er að hægt er að sleppa umferðunum tveimur í úrtökukaflanum sem ekki er tekið úr.
Þeir sem vilja prjóna ennþá stærri vettlinga, þ.e. litla karlmannsvettlinga eða miðlungsstóra kvenvettlinga geta fitjað upp 30 lykkjur í stroff, aukið út 5 eftir stroff og bætt við einu munstri. Þá þarf líka að hafa 6 lykkjur á þumalbandi og 14 lykkjur í þumli. Einnig ætti þá að bæta við 1 umf af
svörtu áður en munstur byrjar og 1-2 eftir að því lýkur.
Allir mega nýta sér uppskriftina til að prjóna eftir henni en ég bið um að hún sé þó eingöngu notuð til einkanota.
Allir mega nýta sér uppskriftina til að prjóna eftir henni en ég bið um að hún sé þó eingöngu notuð til einkanota.
Monday, 21 July 2014
Eldborg - peysa úr fjórföldum plötulopa

Kvenpeysa í stærðum S (M) L (XL)
Yfirvídd: 94 (98) 101 (105) cm.
Peysan er
prjónuð úr fjórföldum plötulopa. Varast ber að prjóna peysuna of litla. Peysa
úr fjórföldum lopa ber sig best ef hún er rúm.
Prjónfesta í sléttu prjóni, 8 lykkjur = 10 cm.
Nauðsynlegt
er að kanna prjónfestuna til að mál standist. Ef á 10 cm eru færri lykkjur
minnkar þú prjónana en stækkar ef þær eru fleiri.
Efni: 7
(8) 9 (9) plötur rauður lopi nr. 1430
Sokkaprjónar
og 80 cm hringprjónn númer 12
Kaðlaprjón:
·
1. umferð: Prjónaðu tvær sléttar lykkjur og eina brugðna til skiptis út umferðina.
· 2. umferð: Sléttu lykkjurnar mynda kaðlana en þær brugðnu skilja þá að. Þú byrjar á
að prjóna innri sléttu lykkjuna með því að fara aftan í hana en tekur hana ekki
af prjóninum. Prjónaðu síðan framan í fremri sléttu lykkjuna og dragðu svo
báðar lykkjurnar sem þú varst að prjóna af prjóninum. Prjónaðu að lokum eina
brugðna lykkju. Endurtaktu þetta út umferðina.
·
Umferðir 1 og
2 eru síðan endurteknar þar til réttri lengd er náð.
Bolur
Fitjaðu upp með fjórföldum
lopa á hringprjón nr. 12, 75 (78) 81
(84) lykkjur. Tengdu saman í hring og prjónaðu kaðlaprjón þar til bolurinn er
orðinn 16 cm. Prjónaðu að því loknu slétt prjón þar til bolurinn mælist 48 (50)
52 (54) cm. Ekki prjóna síðustu 3 lykkjurnar. Geymdu stykkið og prjónaðu
ermarnar.
Ermar
Fitjaðu upp með fjórföldum
lopa á sokkaprjóna nr. 12, 24 (27) 27 (27) lykkjur. Tengdu saman í hring og
prjónaðu kaðlaprjón þar til lengdin á erminni er orðin 16 cm. Prjónaðu þá slétt
prjón næstu 6 umferðir. Auktu þá út undir miðermi um tvær lykkjur, eina í
byrjun umferðar og aðra í lok umferðar. Endurtaktu þetta 3 (3) 4 (4) sinnum með
6 umferða millibili. Nú eiga að vera á prjónunum 30 (33) 35 (35) lykkjur.
Prjónaðu nú áfram þar til heildarlengd erminnar með stroffi er orðin 45 (46) 47
(48) cm. Ekki prjóna síðustu 3 lykkjur umferðarinnar. Settu 6 lykkjur á hjálparband (lykkjurnar sem
eru undir hendi). Prjónaðu hina ermina eins.
Axlastykki
Sameinaðu bol og ermar.
Prjónaðu fyrri ermina 24 (27) 29 (29) lykkjur, settu fyrstu 6 lykkjur bolsins á hjálparband og prjónaðu síðan bakhlið bolsins
31 (33) 34 (36) lykkjur, settu næstu 6 lykkjur bolsins á hjálparband, prjónaðu seinni
ermina 24 (27) 29 (29) lykkjur og framhlið bolsins 32 (33) 35 (36) lykkjur. Þá
eru á prjóninum 111 (120) 127 (130) lykkjur. Eftir að þú hefur sameinað bol og
ermar skaltu prjóna eina umferð til viðbótar og setja prjónamerki á skilum erma
og bols, alls fjögur merki. Fyrsta og síðasta lykkja á hvorri ermi eiga að vera
miðjulykkjur laskanna. Lykkjurnar þrjár sem eru sitt hvorum megin við þessar
miðjulykkjur eru lykkjurnar sem úrtakan er gerð á. Tekið er út í annarri hverri
umferð og prjónuð ein slétt umferð á milli. Svona ferð þú að við úrtökurnar:
Laskaúrtaka
· Hægra megin við miðjulykkjuna á laskanum: Þegar
þrjár lykkjur eru eftir að merkinu tekur þú lykkjuna sem er við merkið og
dregur yfir hinar tvær (lykkjan lengst til vinstri fer yfir þær tvær sem eru
til hægri). Prjónaðu síðan lykkjurnar.
·
Vinstra megin við miðjulykkjuna á laskanum:
Taktu fyrstu lykkjuna óprjónaða fram af, prjónaðu næstu tvær lykkjur og dragðu
síðan óprjónuðu lykkjuna yfir hinar sem þú varst að prjóna.
Prjónaðu nú slétta umferð
og úrtökuumferð til skiptis þar til þú ert
búin að gera úrtöku í 8 (9) 9 (10) umferðum. Þá eiga að vera á prjóninum 47 (48) 55 (50) lykkjur.
Kragi
Nú prjónar þú kragann.
Hann er prjónaður með kaðlaprjóni frá röngunni þar
sem kraginn brettist út. Það gerir þú með því að snúa við og prjóna í hina
áttina, þ.e. innan frá. Ef þú vilt getur þú líka snúið peysunni við áður en þú
byrjar að prjóna kragann. Prjónaðu sams konar kaðla og eru neðan á peysunni. Í
fyrstu umferð skaltu auka út um 1 lykkju í stærð S, um 3 lykkjur í stærð M en
taka út 4 lykkjur í stærð L og auka við 1 lykkju í stærð XL. Þá eru á
prjóninum 48 (51) 51 (51) lykkjur. Prjónaðu
kaðlaprjóna næstu 20 cm. Felldu laust af.
Húfa 45
(49) 53 cm. Athugaðu þó að húfan teygist mjög vel.
Fitjaðu upp 36 (39) 42 lykkjur
með fjórföldum plötulopa á prjóna nr. 12. Tengdu saman í hring. Prjónaðu kaðlaprjón
þar til húfa mælist 21 (22) 23) cm. Endaðu á snúningsumferð (umf. 2 í
kaðlaprjóninu). Prjónaðu þá eina umferð slétta og taktu út allar brugðnu
lykkjurnar með því að prjóna saman aðra og þriðju hverja lykkju þ.e. slétta
og brugðna lykkju. Prjónaðu þá
snúningsumferð. Í næstu umferð fækkar þú lykkjunum um helming með því að prjóna
ávallt saman tvær lykkur út umferðina. Slíttu frá og dragðu bandið í gegn.
Ef þú vilt getur þú haft tvo garða framan á
ermunum og neðan á peysunni. Það setur ákveðinn svip á peysuna.
Saturday, 19 July 2014
Kragi úr Ævintýraprjóni Prjónakistunnar
Einu sinni var ég með leyniprjón á síðu Prjónakistunnar. Á hverjum degi í nokkra dag gaf ég upp lítinn bút af því sem var verið að prjóna. En svo líður tíminn og hlutirnir gleymast. Áðan rakst ég á uppskriftina í tölvunni hjá mér og finnst tilvalið að skella henni hér svo hún gleymist ekki alveg. Ég læt dagana fylgja hér með ef einhver hefur áhuga á að prjóna þetta í litlum skömmtum.
|
Ævintýraprjón
nr. 2
|
Prjónar
Hringprjónn
4 , 40 cm langur
Prjónfesta
22
lykkjur = 10 cm
Garn
og áætluð garnþörf
Margs
konar milligróft garn er hægt að nota s.s. Coast, Smart, Karisma o.fl.
Litir:
A – ljósgrátt
B – Rautt
C – dökkgrátt
D – svart
E – hvítt
Undirbúingur
4 litir af garni fara í verkefni en hægt er að nota fleiri ef vill.
Þegar valdir eru litir skiptir miklu máli að þeir greini sig vel hver
frá öðrum.
Dagur 1
Fitjaðu upp 108 lykkjur með lit A (aðallit) og
tengdu saman í hring.
- Prjónaðu 3 brugðnar umferðir með lit A. En athugaðu samt áður að ef þú nennir ekki að prjóna brugðið áttu að fara að eins og ég er vön að gera, þ.e. að prjóna slétt prjón þessar þrjár umferðir og snúa svo prjóninu við þannig að það slétta snúi inn (rangan) en það brugðna út (réttan). Þegar því er lokið skaltu passa að garnendinn sé á röngunni. Ekki slíta frá.
- Prjónaðu 3 sléttar umferðir með lit B (1.aukalit)
Dagur 2
- Prjónaðu 1 slétta og 3 brugðnar umferðir með lit C. (Mundu að þú getur losnað við að prjóna brugðið með því að snúa við eftir 1. umferðina. Þú prjónar þá slétt á rögunni og færð þannig. Þannig brugðið á réttunni).
- Prjónaðu 3 sléttar umferðir með með lit B
Dagur 3
- Prjónaðu 1 slétta og 3 brugðnar umferðir með lit D
- Prjónaðu 3 sléttar umferðir með með lit B
Dagur 4
Í dag er prjónað munstur samkvæmt
teikningunni, allt með sléttu prjóni. Ef þér hættir til að prjóna
tvíbandamunstur fastar en slétt prjón væri ekki úr vegi að skipta um
prjónastærð og fara í hálfu númeri stærri.
- Prjónaðu munstrið á myndinni. Auður reitur táknar lit A (aðallit) en reitur með X táknar munsturlit C sem er seinni munsturliturinn ef þú ætlar að nota tvo munsturliti í verkefninu. Ef þú hins vegar er með marga liti skaltu byrja á nýjum munsturlit og skipta svo aftur um mynsturlit þegar þú hefur prjónað fjórar umferðir.
Dagur 5
- Prjónaðu munstrið á myndinni eins og í gær. X táknar lit D en auði flöturinn lit E.
Dagur 6
- Prjónaðu 1 slétta umferð með lit A (aðallit).
- Prjónaðu 3 sléttar umferðir með lit B (fyrri aukalitnum ef tveir eru notaðir)
- Prjónaðu 3 sléttar umferðir með lit A.
- Prjónaður 3 sléttar umferðir með lit B
- Prjónaðu 1 slétta umferð með lit A
- Prjónaðu fyrstu fjórar umferðirnar af munstrinu sem þú prjónaðir í gær. Ef þú ert með tvo munsturliti prjónar þú eins og síðast þegar þú prjónaðir munstrið með lit C og aðallit.
Dagur 7
- Prjónaðu 12 umferðir af munstrinu (já einmitt þú endurtekur umf. 1-4 þrisvar sinnum og þetta er framhald frá því í gær). Þá ertu sem sagt komin með 4 munsturendurtekningar eins og í munsturkaflanum sem þú prjónaði á degi 4 og 5. Ef þú ert með tvo munsturliti prjónar þú eins og síðast þegar þú prjónaðir munstrið með lit C og aðallit. Annars skiptir þú um liti eftir hverjar 4 umf. eða lætur hugmyndarflugið ráða skiptingunni.
- Prjónaðu 1 slétta umferð með lit A (aðallit).
Dagur 8
- Prjónaðu 3 sléttar umferðir með lit B.
- Prjónaðu 1 slétta og 3 brugðnar umferðir með lit A.
- Prjónaðu 3 sléttar umferðir með lit B.
Dagur 9
- Prjónaðu 1 slétta og 3 brugðnar umferðir með lit A.
- Prjónaðu 3 sléttar umferðir með lit B.
- Prjónaðu 1 slétta og 3 brugðnar með lit A.
- Felldu af.
Subscribe to:
Posts (Atom)









